Þjóðbúninganámskeið
hjá Annríki – Þjóðbúningar og skart
Úrval námskeiða í búningagerð
- Barnabúningur er saumaður á 8 vikna námskeiði
- Breytinganámskeið tímalengd fer eftir því hvað þarf að gera
- Kyrtill, fald- og skautbúningur eru saumaðir á þriggja ára námskeiðsröð
- Herrabúningur, peysuföt og upphlutur eru saumaðir á 11 vikna námskeiðum
- Möttull er saumaður á 5 vikna námskeiði
Efni og tillegg fæst í Annríki
Máltaka fer fram í fyrsta tíma fyrir hvern búning. Nemendur velja og kaupa efni og tillegg sem fæst í Annríki.
Búninginn fá nemendur tilsniðinn í næsta tíma. Allt skart á búninga fæst í Annríki, nemendur geta keypt skart eða látið laga gamalt. Á námskeiðstímanum er búningurinn fullkláraður undir styrkri leiðsögn.
Allir geta ef vilji er fyrir hendi
Það er viðamikið verkefni að sauma þjóðbúning. Góðan tíma þarf til verksins. Talsverðrar heimavinnu er krafist ásamt góðri mætingu til að halda námskeiðsáætlun.
Nemendur læra og tileinka sér fjölbreytt handverk. Ýmsar útfærslur eru í boði við gerð búninga hvað varðar skreytingar. Því fer mismunandi tími í hvert verk.
Öllum búninganámskeiðum lýkur með hátíðlegri útskrift.

Frænkurnar í afmælishátíð Annríkis í Viðey 2016
Gestir og nemendur við útskrift og afmælishátíð Annríkis í Viðey 2016














