ÞJÓÐBÚNINGASKART

Annríki – Þjóðbúningar og skart

Ási í Annríki hefur sérhæft sig í gerð þjóðbúningaskarts.

  • gamla snúrulagða og kornsetta víravirkinu
  • 20. aldar víravirki
  • steyptu skarti
  • öðru sem notað var til að skreyta búningana

Þjóðbúningaskart hefur verið smíðað frá landnámi. Það hefur þróast, breyst og er margskonar. En notagildi þess er mismunandi. Fer það eftir gerð búningsins hvaða skart tilheyrir honum.

Nú á tímum er skart alltaf smíðað úr silfri. Og gullhúðað ef það á að vera gyllt.

Helsta þjóðbúningaskart við íslenska búninga er:

  • Armband, til skrauts
  • Belti, gerir búning að einni heild, heldur uppi svuntu
  • Borðarósir framan á upphlut, til skrauts
  • Ermahnappar, halda saman ermalíningum
  • Eyrnalokkar, til skrauts
  • Hálsmen, til skrauts
  • Hólkur, hylur samskeyti skotthúfu og skúfs
  • Húfuprjónar, til skrauts
  • Koffur, til skrauts sem hluti af höfuðbúnaði
  • Millur, reim og nál, reima saman upphlut
  • Nælur, til skrauts
  • Spöng, skraut við höfuðbúnað
  • Stjörnuband, skraut við höfuðbúnað
  • Svuntuhnappur, festir saman í streng í mitti
  • Svuntupar, festir saman í streng í mitti
Annríki - Þjóðbúningar og skart. Víravirk, millur, borðarósir, beltispar og doppur.

Víravirki 20. aldar

Skart hjá Annríki -Þjóðbúningar og skart.

Ási að störfum

Annríki - Þjóðbúningar og skart. Borðarósir á 20. aldar upphlut.

Borðarósir

Annríki - Þjóðbúningar og skart. Beltispar og svuntuhnappar, gamalt víravirki, kornsett og snúrulagt. Gullsmiður Ásmundur Kristjánsson

Beltispar og svuntuhnappar

Skart hjá Annríki - Þjóðbúningar og skart. Hólkur á skotthúfu

Hólkur á skotthúfu

Annriki - Þjóðbúningar og skart. Húfuprjónn.

Húfuprjónn

Lagfæring

og hreinsun búningaskarts

Gamalt búningaskart leynist víða. Það þarf gjarnan að laga og hreina. Flest þjóðbúningaskart er smíðað úr silfri. Stundum úr messing, látúni eða öðrum málum. Sjaldnast smíðað úr gulli.

  • Ef skart á að vera gyllt er það gullhúðað
  • Allt skart smíðað úr málmum má hreinsa
  • Allt skart smíðað úr málmum má lagfæra og gera sem nýtt
  • Fáðu metið hvað þarf að gera
  • Gefum verðhugmynd eða tilboð

Hafðu samband á [email protected] eða í síma 511-1573

Annríki - Þjóðbúningar og skart. Skart fyrir lagfæringu.

Fyrir lagfæringu

Annríki - Þjóðbúningar og skart. Búið að gylla skart og setja á upphlut.

Eftir lagfæringu og komið á upphlutinn

Víravirkismynstri raðað inní grind á sprotabeltisenda.

Víravirki raðað í beltisendasprota

Víravirkissprotabeltisendi þveginn eftir sýrubað

Beltisendasproti burstaður eftir sýrubað

Víravirkismynstur kveikt inní grind á sprotabeltisenda

Beltisendasproti kveiktur

Víravirkissprotabeltisendi póleraður með pólístáli til að fá glans fram.

Beltisendasproti póleraður

Víravirki

smíðað úr silfurþræði

Aðferðin við smíðina er gömul. Víravirki er mjög fjölbreytt í gerðinni. Elsta gerðin er kölluð snúrulögð og kornsett.

Algengt var að sandsteypa slíkt búningaskart. Ýmsir málmar voru notaðir. Svo sem silfrur, tin, kopar, messing og eir.

Víravirki sem við þekkjum í dag varð fyrst til um miðja 20. öld. Þá var upphlutur hátískufatnaður sem konur notuðu daglega.

 

Loftverk

klippt út og slegið

Loftverk er handverk unnið úr silfurplötum. Mynstrið er  klippt út og slegið upp með sérsmíðuðum áhöldum. Þannig myndast laufblöð og blóm. Þau lyftast upp af fletinum. Á bakvið er ætíð slétt hápóleruð plata.

Mikil handavinna er í þessu handverki. Það bíður upp á mikla möguleika. Talsvert er til af búningaskarti skreyttu loftverki. Sérstaklega í stokkabeltum og spöngum við skautbúninga.

 

Annríki - Þjóðbúningar og skart. Loftverk næla.

Loftverksnæla

Annríki - Þjóðbúningar og skart. Steyptar millur á íslenskan þjóðbúning.

Steypt armband

Annríki - Þjóðbúningar og skart. Steyptar millur á íslenskan þjóðbúning.

Steypt beltispar

Annríki - Þjóðbúningar og skart. Steyptar millur á íslenskan þjóðbúning.

Steyptar millur

Annríki - Þjóðbúningar og skart. Steyptar millur á íslenskan þjóðbúning.

Steyptar nælur

Steypt

kastað í mót með miðflóttarafli

Fyrr á tímum var mjög algengt að steypa búningaskart. Steypt var úr silfri. Einnig úr messing og kopar.

Áður fyrr var silfursteypa framkvæmd með sandsteypu. Þar var mót af hlutnum pressað í rakan, þjappaðan sand. Fljótandi málmi var svo helt í mótið.

Í tímanna rás hefur aðferðin þróast mikið. Nú á dögum er notuð kaststeypa. Bræddum málmi er kastað í mót með miðflóttarafli.

Steypuaðferðin er skilvirk. Auðvelt er að framleiða marga hluti á stuttum tíma.

Stansað

pressa með miklu þyngdarafli

Talsvert var gert af því að stansa skart. Bakplötur eða stokkar undir víravirkisskreytingu í belti eru stansaðir.

Beltispör voru einnig stönsuð. Mynstur höfð einföld. Fyrst þarf að smíða stans. Mót af hlutnum sem á að vinna.

Áður var silfurplata lögð á blýklump. Stansinn sleginn ofan í, þar til mynstrið var komið. Í dag er þetta unnið í stórum pressum með miklu þyngdarafli.

 

Stansað skart á upphlutsbelti hjá Annríki - Þjóðbúningar og skart.

Stansað beltispar og dopur

Annríki - Þjóðbúningar og skart. Kengjareim í vinnslu.

Hlekkir kveiktir saman

Annríki - Þjóðbúningar og skart. Unnið að kengjareim.

Hlekkir formaðir og fléttaðir í keðju

Annríki - Þjóðbúningar og skart. Kengjareim í vinnslu, þræðing.

Hlekkir kveiktir og tilbúnir

Kengjareim. Ási gllsmiður hjá Annríki, smíðaði.

Kengjareim tilbúin

Kengjareim

klippt, formað og kveikt

Keðjur eða reimar eru notaðar til að reima saman upphlutinn. Oft eru notaðar innfluttar silfurkeðjur.

Einnig eru handgerðar keðjur notaðar. Kengjareimar sem eru mjög gamlar í gerðinni.

Mikil handavinna er við gerð þeirra. Hver hlekkur er klippur í réttri stærð. Formaður og kveiktur. Eftir það er hægt flétta þá saman. Úr verður keðja í réttri lengd.

 

Skart hjá Annríki - Þjóðbúningar og skart