Möttulnámskeið

hjá Annrík – Þjóðbúningar og skart

Námskeiðið er 15 klukkustundir

  • Kennt er einu sinni í viku í 5 vikur, þrjár klukkustundir í senn
  • Saumaður er einn möttull með flaueliskanti
  • Saumatímar eru fjórir
  • Námskeiðið hefst með mátunartíma
  • Mál tekin hjá hverjum og einum
  • Nemendur velja efni
  • Nemendur fá möttulinn tilsniðinn eftir máli
  • Allt efni og tilleg fæst í Annríki
  • Efniskostnaður í kringum 60-70.000 kr
  • Saumaskapur á mötli:
    • Saumað er ytra byrði og fóður
    • Mátað
    • Flaueliskantur undirbúinn
    • Flaueliskantur saumaður á

Námskeiðsverð 75.000 kr

Leiðbeinandi er Guðrún Hildur Rosenkjær, klæðskeri, kjólameistari og sagnfræðingur.

Skart

Möttulpör eru saumauð á boðunga til að festa hann saman. Þau eru afar fjölbreytt, allt eftir efnum og aðstæðum.

Þau geta verið:

  •  Tveir kúplar svipað beltispari
  • Litlar hálfkúlur sem festar eru á flatar plötur. Þannig eru oft 3-4 hálfkúlur á hvorum helmingi. Í hverri kúlu hangir gjarnan lítið lauf eða dropi

Möttulpör geta verið steypt, handunnið víravirki eða loftverk. Verð eru mjög mismundandi eftir gerð. Mismunandi verð er á möttulpari eftir því hvað er valið, ekki innifalið.

Einnig má sauma svartan krók og lykkju í stað möttulpars.

Annríki - Þjóðbúningar og skart. Telma Rún í skautbúningi og möttli.

Telma í fallegum möttli

Skrá mig á námskeið

Nánar um Möttul

Um aldamótin 1900 virðist möttullinn hafa verið kominn í það form sem við þekkjum. Síð flík sem nær niður að útsaumi eða niður fyrir svuntu.

Möttullinn er með hliðar-, axlar- og sniðsauma. Þannig formast hann eftir líkamanum. Hann er frekar þröngur um axlir.  Víkkar svo aðeins niður á við.

Á boðunga, í brjósthæð er sett möttulpar til að krækja hann saman. Innan á boðunga í olnbogahæð eru saumaðir renningar. Þannig er hægt að halda möttlinum þéttara að sér.

Möttlar hafa varðveist í miklu magni. Sýnir það fjölbreytileika þeirra. Þeir hafa verið saumaðir í litríkt flauel, silki og mynstruð efni. Einnig voru þeir hafðir svartir úr silkisatíni eða úr fínum ullarefnum. Þeir eru gjarnan fóðraðir að innan með fínu litríku fóðri.

Í útkant er saumaður skinnkantur. Hann getur verið hvítur með svörtum skottum, (hermelínskinn). Kanturinn getur líka verið dökkbrúnn eða svartur úr minnka-, refa- eða kanínuskinni.

Á seinni hluta 20. aldar hefur möttullinn þróast sem fyrr. Í dag er hann oftast saumaður úr léttu svörtu ullarefni. Gjarnan fóðraður með litríku satínfóðri.

Í stað skinnkants í útbrún er nú oft saumaður flaueliskantur. Skinn er dýrt hráefni og ekki á allra færi að vinna það. Í stað möttulspars sem geta verið dýr er oft setur stór svartur krókur. Þannig hefur þróunin komið til móts við okkar þarfir og væntingar.

Möttulnámskeið