Loading Events

Upphluts- og peysufatanámskeið hefst 23. janúar 2018

Námskeiðið er 33 klukkustundir

  • Kennt er einu sinni í viku í ellefu vikur, þrjár klukkustundir í senn
  • Fyrsti tíminn fer í mátun og svo eru 10 saumatímar
  • Saumaður er einn upphlutur eða ein peysuföt
  • Upphlutur: saumað er upphlutur, pils, skyrta, svunta
  • Gert er belti og húfa sett saman
  • Efni í 19. aldar upphlut kostar ca 90.000 kr
  • Efni í 20. aldar upphlut kostar ca 140.000 kr
  • Peysuföt: saumað er peysa, pils, svunta og slifsi
  • Sett er saman húfa
  • Efni í peysyföt kosta ca 80. -100.000 kr
  • Nemandi fær búninginn tilsniðinn eftir máli
  • Verð á skarti er mismunandi eftir því hvað er valið
  • Allt efni og tillegg fæst í Annríki

Námskeiðsverð er 150.000 kr.

Leiðbeinandi er Guðrún Hildur Rosenkjær, klæðskeri, kjólameistari og sagnfræðingur.

Þú getur skráð þig á námskeið hér eða haft samband í síma 511-1573/898-1573 (Hildur).

Allir geta ef áhugi er fyrir hendi

  • Þú lærir réttu handtökin
  • Farið er skref fyrir skref í hvert atriði
  • Heimavinnu er krafist á milli tíma
  • Með okkar aðstoð og ykkar áhuga og vilja geta allir tekið þátt

Tökum vel á móti þér

Við hlökkum alltaf til að fara af stað með nýja hópa og halda áfram með þá sem fyrir eru. Við erum ávalt reiðubúin að leiðbeina og veita svör við spurningum sem upp geta komið.