Hittingur

Annríki - Þjóðbúningar og skart Suðurgata 73, Hafnarfirði

Hjartað í starfseminni Hittingur er hjartað í starfsemi Annríkis. Þar koma nemendur Annríkis saman. Fræðast, vinna að verkefnum sínum, fásvör við spurningum og njótum saman. Í Annríki er lögð áhersla á fagmennsku og metnað í starf. Mikið rannsóknarstarf liggur að baki hverju verki. Ósk okkar er að veita áhugasömum nemendum innsýn í veröld sem var. Einnig að njóta þeirrar vitneskju sem við höfum aflað okkur og sífellt bætist við. Hittingur Nemendur hittast til að vinna að lokafrágangi á höfuðbúnaði. Höfuðbúnaðir eru þrennskonar, krókfaldur við faldbúning eldri, spaðafaldur fylgir faldbúningi yngri og skautfaldur fylgir skautbúningi.  Það er alltaf gaman að ljúka vel unnu verki. [...]

Þjóðbúninganámskeið hefst

Annríki - Þjóðbúningar og skart Suðurgata 73, Hafnarfirði

Þjóðbúninganámskeið hefst 19. september 2017 Næstu þjóðbúninganámskeið hefjast í Annríki 12. september 2017. Námskeiðin taka mislangan tíma allt eftir þeim búning sem ætlunin er að sauma. Yfirlit yfir þau námskeið sem í boði eru finnur þú hér. Einnig eru nánari upplýsingar um hvert námskeið fyrir sig að finna á vefsíðunni. Efni og tillegg fæst í Annríki Máltaka fer fram í fyrsta tíma fyrir hvern búning. Nemendur velja og kaupa efni og tillegg sem fæst í Annríki. Búninginn fá nemendur tilsniðinn í næsta tíma. Allt skart á búninga fæst í Annríki, nemendur geta keypt skart eða látið laga gamalt. Á námskeiðstímanum er búningurinn fullkláraður undir styrkri leiðsögn. Allir [...]