Loading...
Sarpur2021-06-21T15:40:40+00:00
1504, 2017

Faldafreyjur

15. apríl, 2017|

Faldafreyjur í Annríki Faldafreyjur er hópur nemenda sem hafa lokið við gerð sinna búninga. Fald- og skautbúningsnámskeið byrjuðu í Annríki árið 2012. Um er að ræða þriggja ára námskeiðaröð. Þar fá nemendur  leiðsögn í gerð búninganna og handverki þeim tengdum. Það er ekki síður saga búninga sem skiptir miklu máli. Án rannsókna væri lítið hægt að aðhafast. Þær rannsóknir sem við höfum unnið í Annríki í áraraðir eru grunnurinn að öllu okkar starfi. Ábyrgð og skuldbinding Það gefur auga leið að það er mikill tími sem fer í gerð slíkra búninga [...]

2403, 2017

Menningar­heimsóknir

24. mars, 2017|Tags: , , , , |

Handverks- og búningakynning Menningarheimsóknir áhugafólks hafa færst í aukana hjá okkur í Annríki. Við bjóðum uppá leiðsögn um búningana og sögu þeirra. Á undanförnum árum höfum við í Annríki unnið öttullega að því að safna búningum og fróðleik um þá. Hildur hefur stundað nám í sagnfræði í Háskóla Íslands. Það hefur veitt okkur í Annríki tækifæri til enn frekari rannsókna. Það er virkilega ánægjulegt að upplifa hversu mikinn áhuga fólk sýnir störfum okkar, þekkingu og búningasögunni. Menningarheimsóknir frá HÍ Í dag tókum við á móti góðum hópi úr Háskóla Íslands, samnemendum Hildar úr sagnfræðinni [...]

1602, 2017

Faldbúningur Rannveigar

16. febrúar, 2017|

Faldbúningur Rannveigar Filipusdóttur Sívertsen Föstudaginn 26. febrúar 2016 færði Annríki - Þjóðbúningar og skart Byggðasafni Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarbær gjöf.  Faldbúning á Rannveigu Filipusdóttur Sívertsen. Búningurinn var unnin í samstarfi við Faldafreyjur í Annríki. Frumkvæði að verkinu áttu hjónin Guðrún Hildur Rosenkjær, klæðskeri og sagnfræðingur og Ásmundur Kristjánsson gullsmiður. Árið 2014 voru liðin 250 ár frá fæðingu Bjarna Sívertsen. Hann fékk nafnbótina riddari fyrir störf sín og vasklega framgöngu í málefnum Íslendinga. Það ár var haldin ráðstefna til að minnast þeirra tímamóta. Margir fræðimenn fjölluðu um Bjarna. Líf hans sem verslunar [...]

2301, 2017

Útskrift og afmælis­fögnuður

23. janúar, 2017|

Útskrift og afmælisfögnuður Annríkis í Viðey 2016 Einn liður í öllu okkar starfi er að fagna loknum áföngum. Í lok allra námskeiða er boðið til útskriftar þar sem nemendur skarta sínum fögru búningum. Í maí 2016 héldum við til Viðeyjar með fríðu föruneyti. Þar skyldi fagna útskrift nemenda af þjóðbúninganámskeiðum og nemendum í faldbúningsgerð. Ríflega 100 manns mættu til fagnaðarins í blíðskaparveðri. Við Annríkishjón fögnuðum einnig 5 ára farsælu starfi í góðra vina hópi. Annríki 5 ára Annríki – Þjóðbúningar og skart hóf opinberlega göngu sína 1. júní 2016. Á [...]

2301, 2017

100 fjallkonur í Hafnarfirði

23. janúar, 2017|

Kosningaréttur kvenna 100 ára 19. júní árið 2015 var haldið uppá 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi. Til að fagna þessum tímamótum ákvað Hafnarfjarðarbær að fara óvenjulega leið við val á fjallkonu á 17. júní. 100 konum í íslenskum búningum var boðið að fara með erindi fjallkonunnar. Það er ekki hlaupið að því að safna slíkum fjölda í þjóðbúningum. Hafnarfjarðarbær leitaði því eftir lisðinni Annríkis - Þjóðbúningar og skart um verkefnið. Var því vel tekið. Margir nemendur Annríkis hafa saumað þjóðbúning og tóku vel í verkefnið. Skráning í verkefnið fór í [...]

2301, 2017

Jurtalitun í Annríki

23. janúar, 2017|

Þekking formæðranna Formæður okkar voru fjölhæfar handverkskonur. Þær kunnu að nýta sér það hráefni sem náttúran gaf þeim. Jurtalitun var eitt af því sem þær höfðu mikla þekkingu á. Þær þekktu vel eiginleika plantnanna og þá liti sem þær gáfu með mismunandi meðferð. Á sumrin týndu þær ferskar plöntur og þurrkuðu til notkunar síðar. Þannig gátu þær litað ullina sem þær fengu af fénu. Þó mikið væri um fatnað í sauðalitunum sýna heimildir að þær lituðu bæði garn og fatnað. Garnið var notað til dæmis í ofnar svuntur, prjónuð sjöl og [...]

Go to Top